Leiklistarhátíð í Félagsheimili Seltjarnarness á laugardaginn
Leiklistarhátíð stuttverka sem kallast Margt smátt var haldin í fimmta sinn núna á laugardaginn 10. október í Félagsheimili Seltjarnarness.
Að þessu sinni voru einnig sýnd færeysk verk. Alls voru tuttugu leikverk sýnd á hátíðinni með hléum.
Leiklistarhátíðin hófst kl. 12 með setningarathöfn og stóð til kl. 17.
Í lok dagskrár fjallaði Sigrún Valbergsdóttir um sýningarnar.