Fara í efni

Málþing um almenningssamgöngur á höfuborgarsvæðinu

Föstudaginn 27. maí 2016 var haldið sérstakt málþing um framtíð almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu í Listasafni Reykjavíkur.

Föstudaginn 27. maí 2016 var haldið sérstakt málþing um framtíð almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu í Listasafni Reykjavíkur.

Málþingið var afar vel sótt og fyrirlestrar áhugaverðir og fræðandi. Farið var yfir hlutverk og mikilvægi eflingar almenningssamganga til að ná fram meginmarkmiðum svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins um þróun og þéttingu byggðar til ársins 2040. 

Þátttakendur á fundi um almenningssamgöngurGerð var grein fyrir áformum um nýjan samgönguás,Borgarlínan sem verður hryggjarstykkið í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem gert er ráð fyrir afkastameiri vögnum sem aka munu að hluta til í eigin rými. Ennfremur var fjallað um áform um lagningu hraðlestar á milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins og mögulegum snertiflötum á milli þess verkefnis og innleiðingu Borgarlínunnar. Þá var fjallað um framvindu samnings SSH og Vegagerðarinnar um 10 ára tilraunaverkefnis um eflingu almenningssamgagna á höfuðborgarsvæðinu og stöðu þess verkefnis þegar 4 ár eru liðin frá upphafi þess.

Í lokin fór Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og formaður stjórnar SSH, ítarlega yfir þær áskoranir og verkefni sem eru framundan við að móta næstu skref við að hrinda áformum um Borgarlínuna í framkvæmd, m.a. með því að móta sérstakt þróunarfélag til að takast á við mótun tæknilegra lausna og fjármögnun þessa risaverkefnis sem áætlað er að taki 2-4 ár í undirbúningi og 20-25 ár þar til Borgarlínan verður fullmótuð. Ef áætlanir ganga eftir, má reikna með að 5-7 ár líði þar til akstur hefst með nýjum vögnum og nýju leiðakerfi.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?