Fara í efni

Málefni fatlaðra til sveitarfélaga

Heildarsamkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga um tilfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga, var undirritað 23. nóvember sl. Þjónusta sem ríkið veitir fötluðum samkvæmt lögum nr. 59/1992 um málefni fatlaðra færist til sveitarfélaganna þann 1. janúar 2011.

Hjá Seltjarnarnesbæ hefur verið unnið að undirbúningi þess að taka við málaflokknum um nokkurt skeið. Stýrihópur sem félagsmálastjóri leiðir, heldur utan um vinnuna.

Samkvæmt 2. grein samkomulagsins eru markmiðin með yfirfærslunni eftirfarandi:

  1. að bæta þjónustu og auka möguleika til að laga hana að þörfum notenda með hliðsjón af ólíkum aðstæðum
  2. að stuðla að samþættingu nærþjónustu við íbúa sveitarfélaga
  3. að tryggja að eitt stjórnsýslustig beri ábyrgð á stærstum hluta almennrar félagsþjónustu, bæta samhæfingu og draga úr skörun ábyrgðarsviða stjórnsýslustiga
  4. að tryggja góða nýtingu fjármuna
  5. að styrkja sveitarstjórnarstigið
  6. að einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Samkomulagið er birt á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga og þar er jafnframt að finna ítarlegar upplýsingar um yfirfærsluna.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?