Seltjarnarnesbær færði Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur gjöf að upphæð 200.000 kr. í gær, miðvikudaginn 17. desember.
Seltjarnarnesbær færði Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur gjöf að upphæð 200.000 kr. í gær, miðvikudaginn 17. desember.
Í stað þess að senda út jólakort vill Seltjarnarnesbær leggja sitt af mörkum til þeirra sem eiga um sárt að binda um jólin, en þessi háttur hefur verið hafður á undanfarin ár. Að sögn bæjarstjóra, Ásgerðar Halldórsdóttur, er það mikilvægt að geta létt undir með þeim sem minnst mega sín um jólin í von um að þeir eigi gleðilega hátíð.