Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Félagsheimili Seltjarnarness þriðjudaginn 23. mars sl.
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Félagsheimili Seltjarnarness þriðjudaginn 23. mars sl.
Keppendur voru ellefu talsins. Þeir komu frá Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Grunnskóla Seltjarnarness, Valhúsaskóla.
Fyrir hönd Valhúsaskóla kepptu Anna Antonsdóttir, Jón Sigurðsson Nordal og Matthildur María Rafnsdóttir. Varamaður var Emilíana Birta Hjartardóttir .
Nemendur lásu samfelldan texta úr skáldsögunni Undraflugvélin eftirÁrmann Kr. Einarsson, ljóð eftir Þorstein frá Hamri og ljóð að eigin vali.
Allir nemendur sem fram komu stóðu sig mjög vel en úrslit keppninnar urðu þau að Erlen Anna Steinarsdóttir í Sjálandsskóla varð í 1. sæti, Hrafnhildur Helga Össurardóttir úr Sjálandsskóla í 2. sæti og Jón Sigurðsson Nordal úr Valhúsaskóla í 3. sæti.
Tríó frá Tónlistarskóla Seltjarnarness sá um tónlistarflutning meðan gestir voru að koma í hús og að lestri loknum voru skemmtiatriði frá öllum skólunum.
Lilja og Eva Björkí 10. bekk fluttu lagið The Beauty and The Beast
Hátíðinni lauk með því að allri þátttakendur fengu bókargjöf frá Forlaginu og sigurvegarar auk þess viðurkenningarskjal frá Röddum, samtökum um vandaðan upplestur og framsögn og peningagjöf frá Byr.
Veitingar í hléi voru í boði Mjólkursamsölunnar og Grunnskóla
Seltjarnarness.