Fara í efni

Listasýning í Bygggörðum 5 þar sem fjölmargir þjóðþekktir listamenn leggja hönd á plóg

Hnykill er heiti á nýju verki í leikstjórn Margrétar Vilhjálmsdóttur og hefur undirbúningur staðið yfir síðustu mánuði. Hér er um að ræða kraftmikla og skemmtilega sýningu sem leiðir áhorfandann í ferðalag um mismunandi skynjanir heilans og óravíddir undirmeðvitundar.

Leiksýninginn HnykillHnykill er heiti á nýju verki í leikstjórn Margrétar Vilhjálmsdóttur og hefur undirbúningur staðið yfir síðustu mánuði. Hér er um að ræða kraftmikla og skemmtilega sýningu sem leiðir áhorfandann í ferðalag um mismunandi skynjanir heilans og óravíddir undirmeðvitundar. Sýningin verður sýnd í gömlu og hráu vöruhúsnæði í Bygggörðum 5.  Húsnæðið hefur hópurinn valið að kalla „Norðurpólinn“.

Frumsýning var sl. föstudag 6. nóvember. Í þessari sýningu leiða ýmsir listamenn saman hesta sína undir stjórn Margrétar Vilhjálmsdóttur sem er listrænn stjórnandi ásamt Katrínu Þorvaldsdóttur og Ríkeyju Kristjánsdóttur.  Fjöldi leikara, tónlistar -og myndlistarfólks koma að verkinu. Áhorfandinn leggur af stað í lítið ferðalag þar sem hann hittir fyrir persónur sem segja honum ótrúlegar sögur um söknuð, ástarsorg, eftirsjá og gleði. Sýningin kemur víða við og tengir okkur við ólíkar skynjanir heilans og leyndardóma hans. Ævintýri undirmeðvitundarinnar þar sem munur á draum og veruleika er ekki alltaf skýr.

Leiksýninginn HnykillLeikstjóri Hnykils er, eins og áður sagði, Margrét Vilhjálmsdóttir. Margrét hefur tekið mjög virkan þátt í sýningum með líku sniði á síðustu árum. Í ár leikstýrði hún sýningunni „Orbis Terræ-ORA“ í Þjóðmenningarhúsinu og árið 2007 setti hún upp, ásamt Vatnadansmeyjafélaginu Hrafnhildi, sýninguna „Gyðjan í Vélinni“ í varðskipinu Óðni við mjög góðar viðtökur og var sú sýning tilnefnd til Grímunnar sama ár.

Ólöf Arnalds og Helgi Rafn Ingvarsson semja tónlist og hljóðmynd verksins.  Katrín Þorvaldsdóttir sér um hönnun og yfirumsjón á leikmynd og Ríkey Kristjánsdóttir sér um búningahönnun.  Lýsing er í höndum Arnars Ingvarssonar. 

Miðasala í síma 5959170 á Bókasafni Seltjarnarness.  Opið frá kl.10-19 alla virka daga og frá kl.11-14 á laugardögum.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?