Fara í efni

Listahátíð Seltjarnarneskirkju 27. september - 5. október

Listahátíð í Seltjarnarneskirkju verður sett laugardaginn 27. september kl. 16 en um þessar mundir fagnar Seltjarnarneskirkja 40 ára afmæli rétt eins og bæjarfélagið.

Listahátíð í Seltjarnarneskirkju verður sett laugardaginn 27. september kl. 16 en um þessar mundir fagnar Seltjarnarneskirkja 40 ára afmæli rétt eins og bæjarfélagið. Glæsileg dagskrá hefur verið sett saman af þessu tilefni þar sem fléttast saman myndlistarsýning, fjölbreyttur tónlistarflutningur, kvikmyndasýning og erindi, en frír aðgangur er inn á alla viðburðina.

Hátíðin stendur til 5. október en meðal þeirra sem koma fram við opnunina á laugardaginn eru Ari Bragi Kárason trompetleikari og bæjarlistamaður Seltjarnarness, Eygló Rúnarsdóttir messósópran og Friðrik Vignir Stefánsson orgelleikari en einnig verður opnuð myndlistarsýning á verkum Sveins Björnssonar listmálara við sama tækifæri. 
Sunnudaginn 28. september kl. 16 koma fram á tónleikum í kirkjunni Gunnar Kvaran sellóleikari og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari með aðgengilega og fjölbreytta efnisskrá. 

Fyrstu helgina í október verður boðið upp á dagskrá helgaða Hallgrími Péturssyni þar sem þau Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur og Einar Sigurbjörnsson prófessor emerítus  flytja erindi, en um tónlistina sjá Guðbjörg Hilmarsdóttir sópran og Friðrik Vignir Stefánsson orgelleikari. Dagskráin um Hallgrím fer fram í kirkjunni laugardaginn 4. október kl. 16. Daginn eftir, sunnudag 5. október kl. 16, flytur Kammersveit Reykjavíkur eitt af merkustu kammerverkum tónlistarsögunnar en um er að ræða Oktett D803 fyrir tréblásara og strengi eftir Franz Schubert. Dagskrá Listahátíðar í Seltjarnarneskirkju er í heild sinni í viðhenginu.

Listahátíð Seltjarnarneskirkju 2014

FARSÆLD Í FJÖRUTÍU ÁR
"Þessi fjörutíu ár hefur Drottinn Guð þinn verið með þér..." (5Mós 2.7)
Fagnað 40 ára afmæli bæjarins og safnaðarins á Seltjarnarnesi

27. sept. laugardagur kl. 16

Setningarathöfn listahátíðar
  1. Ávarp formanns listahátíðarnefndar dr. Gunnlaugs A. Jónssonar,
    40 ára afmæli Seltjarnarnessóknar.
  2. Tónlist - Ari Bragi Kárason trompet, Friðrik Vignir Stefánsson orgel og Eygló Rúnarsdóttir messósópran:
    (a) Bibo non Aozora eftir Ryuichi Sakamoto
    (b) Aría úr Kantötu bwv. 30 eftir J.S.Bach: Kommt, ihr angefocht´nen Sunder.
  3. Erindi - Erlendur Sveinsson, Trúarleg stef í myndlist Sveins Björnssonar.
  4. Tónlist - Eygló Rúnarsdóttir messósópran, Friðrik Vignir Stefánsson orgel og Ari Bragi Kárason trompet:
    (c) Ave María eftir Giulio Caccini
    (d) Heyr himna smiður eftir Kolbein Tumason og Þorkel Sigurbjörnsson
Opnuð myndlistarsýning á 17 trúarlegum verkum Sveins Björnssonar listmálara.

Léttar veitingar í safnaðarheimilinu.

28. sept. sunnudagur kl. 16
T ó n l e i k a r Gunnars Kvaran, selló, og Selmu Guðmundsdóttur, píanó.

- E f n i s s k r á -

F. Couperin: „Pieces en Concert“
Hafliði Hallgrímsson: Tvær útsetningar á íslensku þjóðlögum:
1. Grátandi kem ég.....
2. Kindur jarma í kofunum
R. Schumann: Fantasiestücke op. 73

- H l é -

L. Boccherini: Rondo
G. Fauré: Elegie
Árni Thorsteinsson: Nótt
L. Boccherini: Menuetto
C. Saint-Saens: Svanurinn
S. Rachmaninoff: Vocalise
W.H. Squire: Tarantella
4. okt. laugardagur kl. 16

-- Tvö kvöld í miðri viku –
í kjallarasal Seltjarnarneskirkju

1. okt. miðvikudag kl. 20
Sýning á kvikmynd Erlendar Sveinssonar: Málarinn og sálmurinn hans um litinn.

2. okt. miðvikudag kl. 20 - 
Jazzkvöld – Miles Davis minningartónleikar. Ari Bragi Kárason trompetleikari & bæjarlistamaður og Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommuleikari,ásamt félögum rifja upp feril þessa einstæða jazzlistamanns.

4. okt. laugardagur kl. 16
Hallgrímur Pétursson – barnið og maðurinn

Tónlist frá 17. öld: Guðbjörg Hilmarsdóttir sópran og Friðrik V. Stefánsson orgel:
Reisusálmur Hallgríms Péturssonar: Ég byrja reisu mín - ísl.þjóðl/Hallgrímur Pétursson
Ölerindi: Nú er ég glaður á góðri stund - vísnalag úr Mýrasýslu/Hallgrímur Pétursson

Erindi: Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur : Hallgrímur Hólastrákur.

Tónlist: Guðbjörg Hilmarsdóttir sópran og Friðrik Vignir Stefánsson orgel:
Passíusálmur: Upp, upp mín sál, og allt mitt geð - ísl.sálmalag/Hallgrímur Pétursson
44. Passíusálmur: Vertu, Guð faðir, faðir minn - ísl.sálmalag/Hallgrímur Pétursson

Erindi: Einar Sigurbjörnsson prófessor emerítus:
Upp, upp mín sál - Presturinn og sálmaskáldið Hallgrímur Pétursson.

Að síðara erindinu loknu verða léttar veitingar og viðstöddum gefst kostur á að skoða myndlistarsýningu listahátíðarinnar á verkum Sveins Björnssonar m.a. tengdum Passíusálmunum.

5. okt. sunnudagur kl. 16
Tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur
Flutt verður frægt verk, Oktett D803 (op. posth. 166) fyrir tréblásara og strengi, sem Franz Schubert (1797-1828) samdi árið 1824. Verkið er fullt af gáska og músíkölsku fjöri en um leið eru tær og lagræn einkenni tónskáldsins hvergi fjarri, ekki síst í himneskum adagiokaflanum. Oktettinn telst til merkustu kammerverka tónlistarsögunnar og tekur um klukkustund í flutningi.

Kammersveitin fagnar einnig 40 ára afmæli sínu á þessu ári og heimsækir af því tilefni bæði Seltjarnarnes og Grindavík sem halda upp á afmæli kaupstaðarréttinda sinna.

Oktett Kammersveitar Reykjavíkur skipa Arngunnur Árnadóttir, klarínett, Rúnar H. Vilbergsson, fagott, Joseph Ognibene, horn, Una Sveinbjarnardóttir, fiðla, Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla, Guðrún Hrund Harðardóttir, víóla, Sigurgeir Agnarsson, selló og Richard Korn, kontrabassi.

Að tónleikunum loknum verða léttar veitingar og gefst tónleikagestum um leið kostur á að skoða málverkasýningu hátíðarinnar í kirkjunni.

(Hátíðin mun standa yfir dagana 27. sept. til 5. okt. en málverkasýningin út októbermánuð).


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?