Fara í efni

Lífshlaupið - Landskeppni í hreyfingu að hefst þann 3. febrúar

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna og eru Seltirningar eindregið hvattir til að taka þátt.

Lífshlaupið

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlugserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega. 

Lífshlaupið 2021 verður ræst þann 3. febrúar n.k.

Hægt er að taka þátt í fjórum keppnisflokkum:
• Vinnustaðakeppni frá 3. - 23. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
• Framhaldsskólakeppni frá 3. - 16. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
• Grunnskólakeppni frá 3. - 16. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
• Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð sína hreyfingu allt árið

Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.

Íbúar Seltjarnarnesbæjar eru hvattir til að taka þátt í Lífshlaupinu í ár! Allar upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu eru á vef Lífshlaupsins og á fésbókinni


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?