Slysavarnardeild kvenna á Seltjarnarnesi bauð á dögunum öllum leikskólabörnum bæjarins á leiksýninguna „Númi á ferð og flugi“. Leikritið er sett upp af Brúðuleikhúsi Helgu Steffensen og byggir á sögunni um Núma með höfuðin sjö eftir Sjón.

Landsbjörg stendur fyrir sýningunni og er markmiðið með henni að vekja börnin til umhugsunar um hættur sem leynast í umhverfi þeirra.
Bókin um Núma kom út árið 2000 og gaf þá Landsbjörg öllum leikskólum eintak af henni ásamt geisladiski með leikskólalögum. Sagan fjallar um uppátektarsaman strák sem lendir í miklum hrakningum þar til einn góðan veðurdag að hann fer að hugsa um afleiðingar hegðunar sinnar.