Fara í efni

Laust starf stuðningsfulltrúa í Skjólið - Frístundamiðstöð

Frístundaheimilið Skjólið óskar eftir stuðningsfulltrúa, 18 ára og eldri. Um er að ræða hlustastarf með börnum að skóla loknum frá kl. 13:00-16:30. Umsóknarfrestur er til og með 7. október nk.

Laust til umsóknar starf Stuðningsfulltrúa, 18 ára eða eldri í Frístundaheimilinu Skjólið

Um er að ræða hlutastarf með börnum að skóla loknum frá kl. 13:00 - 16:30.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar börn við daglegar athafnir og þátttöku í frístundastarfi
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum
  • Styður og/eða fylgir einum eða fleiri nemendum eftir á ferðum þeirra um skólann, í frímínútum og vettvangs- og sundferðum

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í tómstundafræðum, þroskaþjálfafræðum, uppeldisfræðum, leikskólakennaramenntun eða kennaramenntun er kostur
  • Góð hæfni í samskiptum og samvinnu
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum og unglingum
  • Frumkvæði í starfi
  • Stundvísi og áreiðanleiki

Vakin er athygli á að starfið hentar öllum kynjum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga.

Upplýsingar um starfið veitir: Einar Tómas Sveinbjarnarson
einar.t.sveinbjarnarson@seltjarnarnes.is.

Umsókn ásamt fylgiskjölum (ferilskrá) skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar.

Umsóknarfrestur er til og með 7. október 2024.

 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?