Seltjarnarnesbær auglýsir til umsóknar laust starf innheimtufulltrúa hjá bænum. Um er að ræða fullt starf og er umsóknarfrestur til 30. janúar nk.
Seltjarnarnesbær óskar eftir að ráða innheimtufulltrúa á Fjármálasvið í 100% starf. Leitað er eftir kraftmiklum og jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni og býr yfir getu til að vinna sjálfstætt. Starfsstöðin er á bæjarskrifstofum Seltjarnarnesbæjar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Allar nánari upplýsingar um starfið er að finna á Ráðningavef Seltjarnarnesbæjar.