Ráða á í þrjár stöður kennara á yngsta- og miðstigi: Umsjónarkennari, Heimilisfræði og hönnun og nýsköpun/smíði. Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2023.
Grunnskóli Seltjarnarness auglýsir eftirfarandi stöður á yngsta- og miðstigi:
- Umsjónarkennari
- Kennari í hönnun og nýsköpun/smíði (tímabundið í 1 ár)
- Heimilisfræði
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
- Menntun og hæfni til kennslu á yngsta og miðstigi
- Kennslureynsla í grunnskóla æskileg
Nánari upplýsingar veitir Kristjana Hrafnsdóttir skólastjóri og í síma 5959200.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2023. Ráðið verður í stöðuna f.o.m 1 ágúst 2023.