Fara í efni

Lækningaminjasafn Íslands rís senn á Seltjarnarnesi

Bæjarstjóri Seltjarnarness Jónmundur Guðmarsson, menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þjóðminjavörður Margrét Hallgrímsdóttir, formaður Læknafélags Íslands Birna Jónsdóttir og Anna K. Jóhannsdóttir ritari Læknafélags Reykjavíkur tóku fyrstu skóflustunguna að byggingu Lækningaminjasafns Íslands nú í morgun, föstudaginn 5. september. Safnið kemur til með að rísa á safnasvæði Seltjarnarness við Nesstofu.

Bæjarstjóri Seltjarnarness Jónmundur Guðmarsson, menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þjóðminjavörður Margrét Hallgrímsdóttir, formaður Læknafélags Íslands Birna Jónsdóttir og Anna K. Jóhannsdóttir ritari Læknafélags Reykjavíkur tóku fyrstu skóflustunguna að byggingu Lækningaminjasafns Íslands nú í morgun, föstudaginn 5. september. Safnið kemur til með að rísa á safnasvæði Seltjarnarness við Nesstofu.

Anna K. Jóhannsdóttir, Jónmundur Guðmarsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Margrét hallgrímsdóttir og Birna Jónsdóttir
Á mynd talið frá vinstri: Anna K. Jóhannsdóttir ritari Læknafélags Reykjavíkur, Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, mennamálaráðherra, Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður og Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands (c) 2008 Ellen Calmon

Bygging og rekstur Lækningaminjasafns Íslands er samstarfsverkefni Seltjarnarnesbæjar, menntamálaráðuneytis, Þjóðminjasafns Íslands, Læknafélags Reykjavíkur og Læknafélags Íslands. Seltjarnarnesbær sér alfarið um og ber ábyrgð á byggingu safnhússins sem mun verða um 1600 fermetrar að stærð. Ásdís Helga Ágústsdóttir og Sólveig Berg hjá Yrki arkitektum ehf. hlutu fyrstu verðlaun fyrir hönnun safnhússins í opinni hönnunarsamkeppni sem fór fram árið 1997. Hönnun burðarvirkis, frárennslis-, hreinlætis- og hitalagna er á höndum VSB verkfræðistofu.

Byggingin verður á tveimur hæðum. Á fyrstu hæð er gert ráð fyrir sýningar- og fundarsölum, kaffistofu og safnbúð auk skrifstofurýmis og bókasafns. Kjallarinn verður nýttur undir geymslur og tæknirými.

Gert er ráð fyrir að safnhúsið sem að auki mun nýtast undir aðra menningartengda starfsemi Seltjarnarnesbæjar verði risið árið 2010.

Lækningaminjasafn Íslands verður starfrækt sem stofnun á vegum Seltjarnarnesbæjar sem annast rekstur og stjórn safnsins. Lækningaminjasafnið verður miðstöð safnastarfsemi á sviði lækna- og heilbrigðisvísinda og mun bera ábyrgð á söfnun, varðveislu, rannsóknum og miðlun á þeim munum og minjum sem snerta sögu lækninga á Íslandi. Ráðgert er að Nesstofa sem var reist á árunum 1761-1763 sem aðsetur Bjarna Pálssonar landlæknis verði hluti Lækningaminjasafns Íslands.

Kostnaður við bygginguna er áætlaður 393 m.kr. að frátöldum kostnaði við lóð og skiptist milli samstarfsaðilanna. Seltjarnarnes leggur til 110 m.kr. auk lóðar og Læknafélögin leggja til 25 m.kr. hvort. Menntamálaráðuneytið greiðir 75 m.kr. Þá rennur söluandvirði fasteignarinnar Bygggarðar 7 á Seltjarnarnesi í framkvæmdina, en fasteignin var keypt fyrir erfðafé Jóns Steffensen, prófessors emeritus, sem arfleiddi Læknafélag Íslands að tilteknum eignum í erfðaskrá sinni. Læknafélagið færði síðar Þjóðminjasafninu arfinn til umsjónar.





Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?