Fara í efni

Kynningarrit um fjármál og rekstur bæjarins

Út er komin samantekt á forsendum og útfærslu fjárhagsáætlunar Seltjarnarnesbæjar fyrir yfirstandandi ár. Bæklingnum er dreift inn á hvert heimili á Nesinu en markmið með útgáfunni er að upplýsa íbúa um ráðstöfun fjármuna bæjarins á sem skýrastan hátt.

Útgáfan er liður í aukinni upplýsingagjöf bæjarins til íbúa er hefur það markmið að efla íbúalýðræði. Lögð er áhersla á að koma upplýsingum á skilvirkan hátt til Seltirninga fremur en að íbúar þurfi að leita þeirra. Helsta nýbreytnin sem í þessari útgáfu felst er sú að upplýsingum um fyrirhugaða ráðstöfun skattfjár er komið á framfæri á aðgengilegan hátt í upphafi árs. Þannig eiga íbúar möguleika á að fá innsýn í það hvers er að vænta á næstunni varðandi t.d. framkvæmdir og nýfjárfestingar.

Í bæklingnum* (Pdf-skjal 612 kb) er gerð grein fyrir forsendum fjárhagsáætlunar, helstu rekstrartölum málaflokka ásamt yfirliti yfir fyrirhugaðar framkvæmdir.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?