Fara í efni

Kosið um skipulagstillögur í júní

Öllum Seltirningum á kosningaaldri verður gefinn kostur á að kjósa á milli tveggja mismunandi skipulagstillagna fyrir Hrólfsskálamel og Suðurströnd 25. júní nk. Kosningin verður bindandi fyrir formlega deiliskipulagsgerð svæðisins. Þetta fyrirkomulag var samþykkt samhljóða á bæjarstjórnarfundi Seltjarnarness í gær.

Fánar SeltjarnarnesbæjarÖllum Seltirningum á kosningaaldri verður gefinn kostur á að kjósa á milli tveggja mismunandi skipulagstillagna fyrir Hrólfsskálamel og Suðurströnd 25. júní nk. Kosningin verður bindandi fyrir formlega deiliskipulagsgerð svæðisins. Þetta fyrirkomulag var samþykkt samhljóða á bæjarstjórnarfundi Seltjarnarness í gær.

Bæjarstjórn samþykkti jafnframt að fela skipulags- og mannvirkjanefnd að annast gerð kynningargagna á grundvelli tillagnanna og bæjarstjóra að fela kjörstjórn sveitarfélagsins að annast framkvæmd kosninganna.

Tillaga skipulagsnefndar sem bæjarstjón samþykkti var eftirfarandi: „Skipulags- og mannvirkjanefnd hefur fengið til umfjöllunar niðurstöður og tillögur rýnihóps um skipulagsmál á Seltjarnarnesi, sem nefndin samþykkti að setja á fót þann 13. janúar s.l. Nefndin telur að rýnihópurinn hafi unnið mjög gott verk og vill nýta þetta tækifæri og færa rýnihópsmeðlimum og ráðgjöfum þakkir fyrir vel unnin störf í þágu bæjarbúa. Nefndin telur að niðurstöðurnar og tillögur hópsins endurspegli hvor um sig þá umræðu sem fram hefur farið um skipulag á þessum svæðum og nýtist ásamt öðrum ábendingum hópsins við gerð nýs aðalskipulags fyrir Seltjarnarnes. Er það mat nefndarinnar að þorri Seltirninga ætti að geta metið og tekið afstöðu á grundvelli þeirra, hvor tillagnanna sé betur fallin sem grunnur að deiliskipulagi Hrólfsskálamels og Suðurstrandar. Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir jafnframt að leggja til við bæjarstjórn að tillögurnar verði unnar frekar í samráði við Hornsteina og VSÓ ráðgjöf og síðan kynntar bæjarbúum. Jafnframt telur nefndin mikilvægt að íbúum gefist kostur á að taka afstöðu til þess hvor skipulagstillagan fyrir Hrólfsskálamel og Suðurströnd verði grunnur að formlegu deiliskipulagi fyrir umrætt svæði í anda samráðs og íbúalýðræðis. Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur því til við bæjarstjórn að hún gangist fyrir kosningu um ofangreindar tvær tillögur meðal allra Seltirninga á kosningaaldri. Kosningin, sem verði bindandi niðurstaða um skipulag Hrólfsskálamels og Suðurstrandar, fari fram fyrir lok júní 2005.“

Með þessari ákvörðuninni er skrefið sem hófst með opnu og fjölmennu íbúaþingi árið 2002 stigið til fulls. Einnig er ákveðið blað brotið í sögu skipulagsmála og íbúalýðræðis á landinu í heild þar sem bæjarstjórn ákveður að fá íbúa í lið með sér til að taka bindandi ákvörðun um málið. Í stað þess að einblína á tilteknar tillögur hafa skýrir valkostir verið mótaðir sem íbúar geta síðan valið um.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?