Á síðasta fundi bæjarráðs í desember var samþykkt að fastráðnum starfsmönnum bæjarins yrði gefinn kostur á að gera samgöngusamning við bæjarfélagið. Að auki var samþykkt að þeim stæði til boða aðgangur í Sundlaug Seltjarnarness og bókasafnskort í Bókasafn Seltjarnarness þeim að kostnaðarlausu.
§ Samgöngusamningur
§ Frítt í Sundlaug Seltjarnarness
§ Fríkort í Bókasafn Seltjarnarness
Samgöngusamningur
Markmið samgöngusamningsins er að hvetja starfsfólk Seltjarnarnesbæjar til að nota vistvænan og hagkvæman ferðamáta. Með því móti vill Seltjarnarnesbær leggja sitt af mörkum til að bæta umhverfi, bæjarbrag og heilsu starfsfólks bæjarins og annarra. Samgöngusamningurinn felur í sér að starfsmenn bæjarins noti vistvænar samgöngur til og frá vinnustað í a.m.k. 80% tilvika.
Starfsmenn, sem undirgangast samgöngusamninginn, fá mánaðarlega greiddar óskattlagðar 4.500 krónur með launum. Upphæðin getur einnig nýst sem mánaðarleg greiðsla upp í árskort hjá Strætó, en Seltjarnarnesbær hefur gert samkomulag við Strætó þess efnis að starfsmenn geta nú keypt tólf mánaða kort á verði níu mánaða korts.
Frítt í Sundlaug Seltjarnarness
Fastráðnum starfsmönnum bæjarins gefst kostur á ókeypis aðgangi í Sundlaug Seltjarnarness frá 1. janúar - 31. desember 2015. Virði ársaðgangs er kr. 30.000,- Starfsmönnum er bent á að ganga frá samkomulaginu í afgreiðslu sundlaugarinnar.
Fríkort í Bókasafn Seltjarnarness
Fastráðnum starfsmönnum bæjarins gefst kostur á ókeypis bókasafnskorti í Bókasafn Seltjarnarness sem gildir frá 1. janúar - 31. desember 2015. Virði kortsins er kr. 1.800,- Bókasafnskortið gildir einnig í Borgarbókasafn Reykjavíkur og í Bókasafnið í Mosfellsbæ. Starfsmenn ganga frá bókasafnskortinu í afgreiðslu bókasafnsins.