Fara í efni

Kennsla verður samkvæmt stundarskrá á morgun.

Kennsla verður með eðlilegum hætti í Valhúsaskóla og Mýrarhúsaskóla á morgun en samið hefur verið við kennara um að þeir fái greidd laun fyrir nóvembermánuð fyrirfram.

Vetrarfrí í Valhúsa- og Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi átti samkvæmt skóladagatali að hefjast í dag, 1. nóvember, og standa alla vikuna. Samkvæmt fundargerð skólanefndar frá föstudegi var samþykkt að greiða kennurum yfirvinnu fyrir kennslu í fríinu. Ekki var gert ráð fyrir launagreiðslum til kennara í dag þrátt fyrir frestun verkfalls samkvæmt bréfi sem launafulltrúum sveitarfélaga var sent 29. október síðastliðinn og er undirritað af starfsmanni launanefndar sveitarfélaga. Kennarar á Seltjarnarnesi fengu því ekki greitt þar sem talið var að um samkomulag milli samninganefnda væri að ræða um tilhögun launagreiðslna.

Nemendur og kennarar mættu í Valhúsaskóla í morgun en eftir fund kennara voru nemendur sendir heim í vetrarfrí. Kennarar í Mýrarhúsaskóla ákváðu að ljúka skóladeginum en taka vetrarfrí frá og með morgundeginum.

Bæjarstjórinn boðaði skólastjóra og trúnaðarmenn kennara á sinn fund í morgun til að leita lausna á málinu. Niðurstaða fundarins var að kennarar fái fyrirframgreidd laun fyrir nóvembermánuð á morgun eða miðvikudag. Trúnaðarmenn kennara samþykktu þessa tilhögun og hefst skólastarf því að nýju á morgun samkvæmt stundaskrá.




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?