Fara í efni

Kallað eftir tilnefningum til garðaverðlauna

Umhverfisnefnd Seltjarnarness hefur í fjölda ára veitt viðurkenningar fyrir fagra garða, snyrtilegan frágang lóða, eldri uppgerð hús, götur og opin svæði.

Seltirningar! Við leitum eftir áliti þínu.

Umhverfisnefnd Seltjarnarness hefur í fjölda ára veitt viðurkenningar fyrir fagra garða, snyrtilegan frágang lóða, eldri uppgerð hús, götur og opin svæði. Einnig hafa verið veittar viðurkenningar fyrir fögur tré.

Allar góðar ábendingar eru vel þegnar og þeir bæjarbúar sem vilja koma ábendingum á framfæri er bent á að koma þeim til Steinunnar garðyrkjustjóra Seltjarnarness á netfangið steinunn@seltjarnarnes.is eða þjónustuver bæjarins í síma 5959100 fyrir 22. júní nk.

Með kveðju og þökk,
Umhverfisnefnd Seltjarnarness

Auglýsing um tilnefndingu til garðaverlauna

 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?