Árleg Jónsmessuganga menningarnefndar Seltjarnarness var farin miðvikudaginn 23. júní og var með eindæmum vel heppnuð. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, rithöfundur og sýningarstjóri leiddi gönguna á milli útilistaverka á Seltjarnarnesi.
Árleg Jónsmessuganga menningarnefndar Seltjarnarness var farin miðvikudaginn 23. júní og var með eindæmum vel heppnuð. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, rithöfundur og sýningarstjóri leiddi gönguna á milli útilistaverka á Seltjarnarnesi. Hann sagði frá verkunum og höfundum, merkingu verkanna og vali á staðsetningu. Var margt um manninn enda veðrið dásamlegt, þá var bragðað á hákarli sem verkaður er í hákarlaskúrnum á Seltjarnarnesi. Hitaveita Seltjarnarness bauð upp á íslenskt brennivín og harðfisk.
Að lokum var farið niður í fjöru þar sem kveikt var í brennu og sungið undir harmonikkuleik Gunnars Kvaran. Var sönggleðin mikil og sungið var þar til bálið brann út.