Í Kastljósþætti gærkvöldsins komu fram sláandi niðurstöður úr PISA könnunni hvað varðar þátttöku grunnskólabarna á Seltjarnarnesi.
Í Kastljósþætti gærkvöldsins komu fram sláandi niðurstöður úr PISA könnunni hvað varðar þátttöku grunnskólabarna á Seltjarnarnesi.
Í hjálögðum glærupakka er m.a. unnt að sjá samanburð á nemendum á Seltjarnarnesi við nemendur á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrsta glæran kemur frá Menntavísindastofnun en hinar glærurnar tók fræðslustjóri Seltjarnarness, Baldur Pálsson, saman út frá fyrirliggjandi gögnum.
Nokkrir athyglisverðir punktar:
- Samkvæmt mælikvörðum PISA (sjá glærur) er Grunnskóli Seltjarnarness einu skólaári á undan öðrum skólum á landinu og ríflega það í þeim greinum sem kannaðar voru; lestri, stærðfræði og náttúrufræði. Grunnskóli Seltjarnarness er einnig ári á undan samanburðarlöndum innan OECD, nema í náttúrufræði en skagar hátt upp í það og er langt fyrir ofan meðallag.
- Seltjarnarnesbær er marktækt hærri en önnur sveitarfélög sem þátt tóku í könnuninni.
- Grunnskóli Seltjarnarness hefur þurft að mæta hagræðingarkröfu ár eftir ár frá 2006 en kannanir sýna að hann hefur á sama tíma styrkt sig í sessi
- Grunnskóli Seltjarnarness er með flesta nemendur á hvern kennara á landinu.
- Árið 2012, þegar mælingar sýndu lakari niðurstöður á Nesinu, var gerð aðgerðaráætlun sem miðaði að því að bæta árangur nemenda á Seltjarnarnesi sem skilaði þeim árangri sem við nú verðum vitni að.
- Kannanir og rannsóknir hjá Rannsókn og greiningu og Skólapúlsinum sýna að góður árangur nemenda á Nesinu helst í hendur við góða líðan þeirra.
- Góðan árangur nemenda segir fræðslustjóri að þakka megi fyrst og fremst frábæru starfsfólki skólans en einnig bæjaryfirvöldum sem hafa stutt við kennara og starfslið skólans og lagt áherslu á öfluga stoðþjónustu í skólanum.