Kjör Íþróttamanns Seltjarnarness fór fram þriðjudaginn 23. janúar sl. að viðstöddu fjölmenni. Kjör Íþróttamanns Seltjarnarness hefur verið árviss viðburður síðan 1993 og er umsjón Æskulýðs- og íþróttaráðs (ÆSÍS), sem vill með þessu vekja athygli á gildi íþrótta, stuðla enn frekar að öflugu íþróttalífi á Seltjarnarnesi og láta íþróttafólk vita að bæjarfélagið styðji við bakið á því.
Tilnefnd til íþróttamanns Seltjarnarness fyrir árið 2004 voru Finnur Ingi Stefánsson, handknattleikur, Hrafn Jónsson, knattspyrna, Kári Steinn Karlsson, frjálsar íþróttir, Katrín Ómarsdóttir knattspyrna, Lilja Jónsdóttir, blak og Skúli Jón Friðgeirsson, knattspyrna.
Fyrir valinu urðu Lilja Jónsdóttir og Kári Steinn Karlsson
Lilja er ein af okkar bestu blakkonum á landinu. Hún hefur leikið með Þrótti undanfarin ár, þar á undan lék hún með Víkingi. Hún hefur leikið með landsliðinu síðan 2002.
Kári Steinn er besti langhlaupari landsins um þessar mundir. Hann slær hvert Íslandsmetið af öðru og er ósigrandi í 1500, 3000, 5000 og 10000 metra hlaupum. Einnig hefur honum gengið vel á mótum erlendis.
Afreksstyrkur
Formaður ráðsins Lárus B. Lárusson færði formanni fimleikadeildar Gróttu Þóru Sigurðardóttur afreksstyrk að upphæð 200.000 kr fyrir góðan árangur árið 2006. Árið 2006 var viðburðarríkt hjá fimleikadeildinni, til að mynda varð Sif Pálsdóttir Norðurlandameistari í fjölþraut, margir Íslandsmeistara- og bikartitlar unnust, þátttaka fimleikadeildarinnar á Evrópumeistara- og heimsmeistaramóti.
Efnilegt íþróttafólk
Ásamt kjöri íþróttamanns ársins voru eftirfarandi efnilegu íþróttafólki veittar viðurkenningar: Guðmundur Örn Árnason golf - Kristinn Arnar Ormsson golf - Eva Katrín Friðgeirsdóttir fimleikar - Elín Margrét Björnsdóttir fimleikar - Guðmundur Bragi Árnason handknattleikur - Hörður Morthens handknattleikur - Helga Rún Hlöðversdóttir handknattleikur - Rannveig Smáradóttir handknattleikur - Sturlaugur Haraldsson knattspyrna - Atli freyr Sveinsson knattspyrna - Garðar Freyr Ólafsson sund - Kolbrún Jónsdóttir sund - Geir Elías Helgason sund - Snorri Sigurðsson frjálsar íþróttir - Stefán Atli Sigtryggsson fimleikar.
Félagsmálafrömuðir
Veittar voru viðurkenningar fyrir vel unnin störf í þágu æskulýðs- og tómstundamála. Þessir einstaklingar eru jákvæðar fyrirmyndir, leiðandi í félagsstarfi og búa yfir góðri samskiptatækni. ÆSÍS telur að þessi málaflokkur sé ekki síður mikilvægur en gildi íþrótta.
Þau sem hlutu viðurkenningarnar að þessu sinni voru Kristín Helga Magnúsdóttir og Kristinn Arnar Ormsson.
Guðjón Valur og Sif Pálsdóttir heiðruð
Lárus B. Lárusson formaður ÆSÍS færði þeim Sif Pálsdóttur fimleikakonu og Guðjóni Val Sigurðsyni handknattleiksmanni bókargjöf frá bæjarfélaginu en með bókargjöfinni var verið að heiðra þau og færa þeim smá virðingarvott og minningu um glæstan feril og glæsilegan árangur á sl. árum auk þess að vera bæði tilnefnd til íþróttamanns ársins árið 2006. Guðjón Valur æfði með Gróttu á sínum yngri árum og Sif hefur æft fimleika hjá Gróttu undanfarin ár. Erla Guðmundsdóttir tók við bókargjöfinni fyrir hönd Guðjóns Vals.