Fara í efni

Innritun barna fædd 2016 að hefjast í Grunnskóla Seltjarnarness

Innritun 6 ára barna (fædd árið 2016) sem eiga að hefja skólagöngu haustið 2022 í Grunnskóla Seltjarnarness fer fram á vefgátt bæjarins Mínar síður, dagana 24.-28. janúar næstkomandi.

Innritun 6 ára barna (fædd árið 2016) sem eiga að hefja skólagöngu haustið 2022 í Grunnskóla Seltjarnarness fer fram dagana 24.-28. janúar næstkomandi.

Sömu daga fer fram innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Seltjarnarness eða koma úr sjálfstætt starfandi skólum. 

Innritun í Grunnskóla Seltjarnarness fer fram í gegnum vefgátt bæjarins, Mínar síður, á slóðinni www.seltjarnarnes.is

Nánari upplýsingar og aðstoð veitir starfsfólk Grunnskóla Seltjarnarness í síma 5959200. Fyrirspurnir er einnig hægt að senda á netfangið grunnskoli@grunnskoli.is

Skólaskrifstofa Seltjarnarnesbæjar


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?