Fara í efni

Húsaleigubætur hækkaðar og dregið úr tekjuskerðingu

Ríkisstjórnin samþykkti tillögu Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra þessa efnis á fundi í gær.
Grunnfjárhæð húsaleigubóta hækkar á næsta ári og verulega verður dregið úr skerðingaráhrifum tekna á bætur leigjenda.

Breytingarnar eru liður í innleiðingu nýs húsnæðisbótakerfis og er markmiðið einkum að húsaleigubætur nái til fleiri heimila en verið hefur, að því er fram kemur á vef velferðarráðuneytisins.
Breytingar árið 2013
  • Hækkun tekjuskerðingarmarka 1. janúar 2013. Húsaleigubætur byrja að óbreyttu að skerðast þegar árstekjur fara yfir 2,25 milljónir króna en með breytingunni hækka mörkin í 2,5 milljónir króna.
  • Skerðing húsaleigubóta vegna tekna lækkar úr 12% í 8% á ársgundvelli frá 1. janúar 2013.  Að óbreyttu skerðast húsaleigubætur í hverjum mánuði um 1% af árstekjum umfram 2,25 milljónir króna. Eftir breytinguna munu bæturnar skerðast um 0,67% af árstekjum umfram 2,5 milljónir króna.
  • Grunnupphæð húsaleigubóta hækkuð í áföngum. 
Þann 1. janúar næstkomandi hækkar grunnupphæð húsaleigubóta um 1.700 krónur á mánuði og aftur þann 1. júlí um 2.300 krónur.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?