Hreinsunardagur var á Seltjarnarnesi 5. maí sl. Bæjarbúum var send tilkynning og plastpoki í tilefni dagsins. Mörg félagasamtök á Seltjarnarnesi tóku þátt í átakinu og vill Umhverfisnefnd þakka þeim svo og öllum bæjarbúum sem tóku þátt í verkefninu kærlega fyrir þáttöku.
Strax kl. 9:00 um morgunin var kaffi og meðlæti sett á borð í Áhaldahúsi bæjarins fyrir þá bæjarbúa sem það vildu þyggja
Svo ánægjulega vildi til að einmitt þennan dag voru Lionsmenn tilbúnir með staura með merkingum fimm bátavara. Stór hópur þeirra mætti í morgunkaffið og settu síðan staurana niður á viðeigandi stöðum.
Guðmundur Jón Helgason, sem rekur ættir sínar til Nýjabæjar var Lionsmönnum innan handar með val á staðsetningum. Umhverfisnefnd þakkar Lionsmönnum svo og Guðmundi Jóni ánægjulegt samstarf við þetta verkefni.