Hreinsunardagur á Seltjarnarnesi verður næstkomandi laugardag. Undirbúningur fyrir hreinsunardaginn er í fullum gangi.
Hreinsunardagur á Seltjarnarnesi verður næstkomandi laugardag. Undirbúningur fyrir hreinsunardaginn er í fullum gangi. Mikið var um að vera sl. mánudags-kvöld þegar eldri borgarar á Skólabraut 3-5 hjálpuðu til við að pakka plastpokum til að dreifa á öll heimili í bænum.
Mörg félagasamtök í bænum ásamt bæjarbúum ætla að taka til hendinni laugardaginn 7. maí og snyrta í kringum sig og opin svæði.
Þennan sama dag kl. 11 er einnig hinn árlegi hjóladagur skólabarna á lóð Mýrarhúsaskóla Lögreglan skoðar hjólin og slysavarnarkonur yfirfara hjálmana. Dregið verður í umferðagetraun nemenda Mýró og veitt verðlaun.