Í kjölfar þess að bæjarstjórn samþykkti að hámarkshraði á Lindarbrautinni yrði lækkaður úr 50 km/klst í 40 km/klst hafa nú verið sett upp tvö hraðavaraskilti í sitthvora akstursstefnuna.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 12. maí sl. niðurstöðu Skipulags- og umferðarnefndar að lækka hámarkshraða á Lindarbrautinni úr 50 km/klst í 40 km/klst til að auka umferðaröryggi vegfarenda um götuna. Hraðaskiltum hefur verið breytt á Lindarbrautinni auk þess sem nú hafa verið sett upp tvö hraðavaraskilti í sitthvora akstursstefnuna sem benda ökumönnum á hraðann sem þeir aka á. Íbúar hafa lýst ánægju sinni með breytinguna og er vonast til að hún dragi markvisst úr hraðanum á Lindarbrautinni sem er fjölfarin gata og mikið um börn og ungmenni á leið til og frá skóla.