Ungmennaráð Seltjarnarness stóð fyrir harmonikkuballi á plani björgunarsveitarhússins við Suðurströnd í gær.
Ungmennaráð Seltjarnarness stóð fyrir harmonikkuballi á plani björgunarsveitarhússins við Suðurströnd í gær. Einnig bauð ungmennaráðið uppá veitingar.
Listahópur Seltjarnarnes sem starfar sumarið 2011 lék nokkur lög.
Ballið var á félags- og tómstundadagskrá eldri bæjarbúa þessa vikuna.
Sólin brosti við gestum sem voru á öllum aldri, nutu góða veðursins og skemmtu sér vel.