Fara í efni

Hætt við vetrarfrí í grunnskólum Seltjarnarness.

Skólanefnd Seltjarnarness samþykkti á fundi sínum í dag að hætta við vetrarfrí er hefjast átti samkvæmt skóladagatali í næstu viku. Á fundinum var samþykkt eftirfarandi bókun: "Samkvæmt samþykktu skóladagatali fyrir grunnskóla Seltjarnarness á að vera vetrarfrí í skólanum vikuna 1. – 5. nóvember nk.

Þar sem verkfall kennara hefur staðið sl. 6 vikur þykir með öllu ófært að við taki vetrarleyfi í heila viku, nú þegar verkfalli hefur verið frestað.

Skólanefnd samþykkir að umrætt vetrarleyfi verði ekki og er skólastjóra falið að skipuleggja skólastarf vikuna 1. – 5. nóvember eins vel og frekast er kostur með tilliti til þess að einhverjir kennarar og nemendur hafa ákveðið að taka vetrarfrí til samræmis við áður samþykkt skóladagatal og geta ekki breytt því. Kennarar fái greidd laun vegna kennslu þessa daga eins og kjarasamningur segir til um."




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?