Fara í efni

Gunnar Lúðvíksson ráðinn verkefnastjóri fjárhags- og stjórnsýslumála Seltjarnarnesbæjar

Birgir Finnbogason framkvæmdastjóri fjárhags- og stjórnsýslusviðs Seltjarnarnesbæjar hefur verið ráðinn til að gegna stöðu yfirmanns fjármála- og stjórnsýslu hjá ÖSE (Öryggis- og samvinnustofnum Evrópu). Birgir lætur af störfum hjá bænum þann 15. þ.m.

Þar sem Birgir lætur af störfum með skömmum fyrirvara og á meðan vinna við fjárhagsáætlun 2010 stendur sem hæst hefur verið ákveðið að ráða Gunnar Lúðvíksson tímabundið í stöðu verkefnastjóra til sex mánaða. Gunnar kemur til með að sinna fjármálastjórn, starfsmannastjórnun og öðrum tilfallandi verkefnum.

Gunnar er með kennarapróf, B.Sc. próf í viðskiptafræði og meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja. Þá hefur hann rekið eigið fyrirtæki um árabil og hefur setið í fjölmörgum nefndum og ráðum fyrir Seltjarnarnesbæ.

Gunnar er kvæntur Grétu Maríu Birgisdóttur og eiga þau fjögur börn. Gunnar tekur til starfa í dag þriðjudaginn 10. nóvember.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?