Fara í efni

Græntími gönguljósanna á gatnamótum Suðurstrandar og Nesvegs hefur verið uppfærður og virkar vel.

Græntímar fyrir gangandi vegfarendur eru nú 25 sek. í öllum tilvikum og rýmingartími fyrir hreyfihamlaða örlítið lengri.

Nýju umferðarljósin á mótum Suðurstrandar og Nesvegs fengið sinn aðlögunartíma um nokkurra vikna skeið og nú í vikunni voru græntímarnir uppfærðir og stilltir þannig að gangandi vegfarendur komist yfir báðar þveranir á eðlilegum gönguhraða (1,2 m/sek).

Græntíminn fyrir gangandi er þá sá sami, 25 sek. í öllum tilfellum, þar með talið fyrir hreyfihamlað og blint fólk.

Rýmingartími fyrir hreyfihamlaða er hins vegar áfram aðeins lengri eins og var, þ.e.a.s. tíminn frá því að gönguljós verður rautt og þar til bílar fá grænt.

Með öryggi gangandi og hjólandi vegfarendur á öllum aldri að leiðarljósi virka nýju umferðarljósin nú eins og best verður á kosið. Lokafrágangur í kringum umferðarljósin verður unnin á næstu vikum.




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?