Fara í efni

Götusópun á Seltjarnarnesi verður 11. - 17. maí 

Á morgun 11. maí hefst götusópun á vegum Hreinsitækni. Seltjarnarnesi hefur verið skipt upp í fjögur hólf og verður eitt hólf tekið fyrir á hverjum degi (sjá kort). Íbúar eru beðnir um að fjarlægja bíla sína af götunum á meðan.

Nú er vorhreinsun komin í fullan gang hjá bænum og dagana 11., 12., 14. og 17. maí verða göturnar sópaðar á vegum Hreinsitækni. Þegar er búið að sópa gangstéttar og stíga. Skipulagning götusópunarinnar er með þeim hætti að Seltjarnarnesinu hefur verið skipt upp í fjögur hólf og tekur u.þ.b. einn dag að sópa allar götur í hverju hólfi fyrir sig samkvæmt áætlun Hreinsitækni. Bíleigendur eru beðnir að fjarlægja bíla sína af götunum þann dag sem sópað verður í því hverfi til þess að alls staðar verði hægt að sópa sem best. Daginn fyrir götusópun verða send út sms á vegum Seltjarnarnesbæjar til íbúa með skráða gsm síma í hverju "hólfi" fyrir sig. 

Sjá nánar á myndinni en þar merkir:

  • 1 = 11. maí  (þriðjudagur)
  • 2 = 12. maí (miðvikudagur)
  • 3 = 14. maí (föstudagur)
  • 4 = 17. maí (mánudagur)
ATH! Svartmerktir botnlangar eru ekki sópaðir (einkalóðir / innkeyrslur upp á húsum)

Götusópun


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?