Fara í efni

Göngum í skólann 

Miðvikudaginn 4. september hófst verkefnið Göngum í skólann og mun það standa til 18. september. Þetta er í sjöunda  sinn sem Ísland er þátttakandi í þessu verkefni og stöðugt bætast fleiri skólar í hópinn. 

Grunnskóli Seltjarnarness hefur verið með frá upphafi. Markmið verkefnisins er m.a. að hvetja til aukinnar hreyfingar, auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann, fræða nemendur um ávinning reglulegrar hreyfingar og minnka bílaumferð í nágrenni grunnskóla. 

Allir bekkir fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestan árangur. Þær bekkjardeildir sem ná bestum árangri fá gull-, silfur- eða bronsskóinn til varðveislu þar til næsta 

Göngum í skólann keppni verður í vor. 

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?