Fara í efni

Göngum í skólann í Mýró

Föstudaginn 5. september, hófst í Mýrarhúsaskóla átakið Göngum í skólannog mun það standa til 25. sept.
Föstudaginn 5. september, hófst í Mýrarhúsaskóla átakið Göngum í skólannog mun það standa til 25. sept. Þetta er í áttunda  sinn sem Ísland er þátttakandi í þessu verkefni og stöðugt bætast fleiri skólar í hópinn. Grunnskóli Seltjarnarness hefur verið með frá upphafi, en í fyrra voru 64 skólar á landinu skráðir til leiks.         
Markmið verkefnisins er m.a. að:

  • hvetja til aukinnar hreyfingar
  • auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann
  • fræða nemendur um ávinning reglulegrar hreyfingar
  • minnka bílaumferð í nágrenni grunnskóla
 
Grunnskóli Seltjarnarness hvetur foreldra til að fylgja yngstu börnunum, gangandi eða hjólandi og nota þá tækifærið og kenna þeim öruggustu leiðina í skólann. Allir bekkir fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestan árangur. Þær bekkjardeildir sem ná bestum árangri fá gull-, silfur- eða bronsskóinn til varðveislu þar til næsta Göngum í skólann keppni verður í vor.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?