Stígurinn verður bæði breikkaður og lagfærður þar sem þörf krefur og eru vegfarendur beðnir að gæta að sér á meðan á framkvæmdunum stendur.
Hafnar eru framkvæmdir við breikkun og lagfæringar á göngu- og hjólastígnum sem liggur á milli Snoppu og bílastæðisins við Bakkatjörn. Stígnum hefur verið lokað á meðan á framkvæmdunum stendur enda vinnuvélar á staðnum sem hættulegar eru vegfarendum. Loftorka sér um verkið og er gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar taki um 6 vikur. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur í för með sér.