Bæjarstjórn samþykkti nýverið að bregðast við ábendingu ungmennaráðs Seltjarnarnesbæjar um hækkun viðmiðunaraldurs fullorðinsgjalds í Sundlaug Seltjarnarness. Fullorðinsgjald miðast því nú við 16 ára aldur og því greiða börn og ungmenni frá 5 – 16 ára aldurs nú 60 krónur fyrir aðgang að Sundlauginni.

Gjaldskrá Sundlaugarinnar er sú lægsta á höfuðborgarsvæðinu en fullorðinsgjald er 200 krónur og gjald fyrir eldri borgara er 75 krónur. Jafnframt var því beint til ÆSÍS að móta hugmyndir um eflingu sundiðkunar allra bæjarbúa án mismununar á grundvelli aldurs.