Ættingjar Alberts Þorvarðarsonar fyrrverandi vitavarðar í Gróttu komu færandi hendi til Jónmundar Guðmarssonar bæjarstjóra og gáfu Seltjarnarnesbæ ýmsa hluti sem voru í eigu Alberts s.s. riffil, tóbakshorn, netanálar, ljósmyndir og fleira.

Það er mikils virði fyrir Seltjarnarnesbæ að eignast muni er voru í eigu síðasta vitavarðarins í Gróttu. Í samráði við menningarnefnd bæjarins verður mununum fundinn verðugur staður.