Fara í efni

Fyrrum bæjarlistamaður Seltjarnarness með einkasýningu í Listasafni Íslands

Um síðustu helgi var opnuð í Listasafni Íslands einkasýning Kristínar Gunnlaugsdóttur, Sköpurnarverk, en Kristín var bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2008
Kristín GunnlaugsdóttirUm síðustu helgi var opnuð í Listasafni Íslands einkasýning Kristínar Gunnlaugsdóttur, Sköpurnarverk, en Kristín var bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2008. Um sýninguna segir á vef Listasafns Íslands:

Hið óvænta við list Kristínar Gunnlaugsdóttur er hið djarfa, erótíska yfirbragð sett fram með miðaldalegum hætti og kirkjulegri tækni sprottinni af veflist og gylltri undirstöðu, í ætt við trúarlist gotneska stílsins. Teiknikunnátta hennar og fínleg meðferð efnisins er í hróplegri mótsögn við umbúðalausa, jafnvel hneykslanlega framsetningu verkanna.

Sýningin stendur til 19. janúar 2014.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?