Fara í efni

Fundað með bæjarstjóra um leiktæki á skólalóðina

Í byrjun september barst Þór Sigurgeirssyni bæjarstjóra fallegt og áhugavert bréf frá ungum Seltirningi, Katrínu Eyvinds nema í Mýrarhúsaskóla og funduðu þau í framhaldi.

Í byrjun september barst Þór Sigurgeirssyni bæjarstjóra fallegt og áhugavert bréf frá ungum Seltirningi, Katrínu Eyvinds nema í Mýrarhúsaskóla. Eins og sjá má í bréfinu sem birt er með heimild hennar og foreldra hennar er Katrínu umhugað um að sett verði fleiri leiktæki á skólalóðina fyrir alla nemendur skólans.


Bæjarstjóri brást skjótt við erindinu og bauð Katrínu á fund til sín til að ræða málin nánar. Katrín kom ásamt móður sinni á fund í síðustu viku þar sem Katrín og bæjarstjóri spjölluðu saman í dágóða stund auk þess sem hann fékk hugmyndir að leiktækjum sem hún og skólafélagar hennar vilja helst fá á skólalóðina. Bæjarstjóri lofaði að unnið væri í því að fjölga leiktækjum og bæta skólalóðina eins fljótt og hægt væri auk þess að segja Katrínu frá einu nýju leiktæki sem væri verið að fara að setja upp á næstu dögum sem hún var ánægð að heyra og hlakkar til að prófa.
 



Katrín fékk mátaði ennfremur bæjarstjórastólinn og tók sig vel út eins og sjá má enda skelegg stúlka sem lætur sig svo sannarlega málefnin varða.







Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?