Myndin fangar hið glaðværa andrúmsloft sem ríkti á Gróttudeginum á frumlegan og skemmtilegan hátt.
Þær voru hver annarri betri myndirnar sem sendar voru inn í ljósmyndakeppnina sem Seltjarnarnesbær efndi til í tilefni af Fjölskyldudeginum í Gróttu 1. maí síðastliðinn.
Dómnefndinni var mikill vandi á höndum en niðurstaðan var að mynd Birgis Más Þorgeirssonar bar sigur úr bítum.
Myndin þykir fanga hið glaðværa andrúmsloft sem ríkti á Gróttudeginum á frumlegan og skemmtilegan hátt og vísar auk þess til hversu vel fólk naut sín í brakandi blíðu sumarfagnaðarins í Gróttu.