Fara í efni

Framkvæmdir við nýja heilsuræktarstöð að hefjast

Í kjölfar samþykktar nýs deiliskipulags skóla- og íþróttasvæðis er bygging nýrrar og glæsilegrar heilsuræktar World Class fyrir Seltirninga á beinu brautinni á grundvelli viljayfirlýsingar bæjarstjórnar Seltjarnarness og Þreks hf. Hönnun hefur staðið yfir frá því í vor og hefjast framkvæmdir núna í janúar.

Stefnt er að því að frá og með næsta hausti geti Seltirningar ræktað heilsuna við fyrsta flokks aðstæður á borð við þær sem nú má finna í flaggskipi World Class keðjunnar í Laugum við Laugardal.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?