Fara í efni

Framkvæmdir bæjarins sumarið 2004

Framkvæmdir sumarsins gengu vel á Seltjarnarnesi enda viðraði vel fyrir hin fjölmörgu viðhaldsstörf er unnin eru á sumri hverju. Vel miðar við fegrun opinna svæði innan bæjarmarkanna og verður áfram haldið á sömu braut á næstunni.    

VinnuvélFramkvæmdir sumarsins gengu vel á Seltjarnarnesi enda viðraði vel fyrir hin fjölmörgu viðhaldsstörf er unnin eru á sumri hverju. Vel miðar við fegrun opinna svæði innan bæjarmarkanna og verður áfram haldið á sömu braut á næstunni.

Í sumar var t.d. lokið við frágang á Snoppu með malbikaður lokakaflinn frá Norðurströnd að bílastæðinu þar. Aðstaðan á Snoppu er nú orðin til fyrirmyndar og hefur umferð um svæðið vaxið til muna í kjölfarið. Suðurströnd var einnig kantlögð í sumar auk þess sem unnið var að viðgerðum á gangstéttum, útivistarsvæðum og götum víða um bæinn.




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?