Fara í efni

Forsetakosningar 2020

Forsetakosningar fara fram laugardaginn 27. júní 2020. Kjörfundur á Seltjarnarnesi er frá kl. 9.00 til kl. 22.00 í Valhúsaskóla við Skólabraut.

Forsetakosningar fara fram laugardaginn 27. júní 2020. Kjörfundur á Seltjarnarnesi er frá kl. 9.00 til kl. 22.00 í Valhúsaskóla við Skólabraut og kosið er í þremur kjördeildum eins og í undanförnum kosningum.

Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa kennivottorði eða nafnskírteini eða á annan fullnægjandi háttað mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörskránni afhentir fulltrúi í kjörstjórn honum einn kjörseðil. 

Kjörstjórn

Yfirkjörstjórn á Seltjarnarnesi skipa: Davíð B. Gíslason, Árni Ármann Árnason og Gunnlaugur Ástgeirsson. Aðsetur kjörstjórnar á kjördag verður í Valhúsaskóla, sími 59 59 250.

Kjörskrá

Kjörskrá vegna forsetakosninga 27. júní 2020 liggur frammi í þjónustuveri á Bæjarskrifstofu Seltjarnarness, Austurströnd 2, frá og með 16. júní sl. Ef einhverjar athugasemdir eru við kjörskrána ber að snúa sér með þær til bæjarstjóra.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Frá og með 15. júní til og með 26. júní nk. fer atkvæðagreiðslan fram á þremur stöðum á höfuðborgasvæðinu, þ.e. á 1. hæð í Smáralind, á 2. hæð í Smáralind og undir stúkunni á Laugardalsvelli. Þar verður opið alla daga milli kl. 10:00 og 22:00. 

Á kjördag, laugardaginn 27. júní verður eingöngu opið á 1. hæð í Smáralind milli kl. 10:00 og 17:00 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins.


Nánari upplýsingar um forsetakosningarnar er að finna á vef stjórnarráðsins.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?