Lesið í lauginni var bókmenntaviðburður sem haldinn var í Sundlaug Seltjarnarness og World Class á laugardaginn var. Viðburðurinn var samstarfsverkefni Seltjarnarnesbæjar, Forlagsins og World Class í tilefni af alþjóðlegum degi bókarinnar.
Lesið var upp úr bókum sem Forlagið hefur gefið út og var boðið upp margan gullmolann. Höfundarnir Gerður Kristný, Hrund Þórsdóttir, Sigurður Pálsson og Þórarinn Eldjárn heiðruð sundlaugargesti með upplestri.
Þá flutu ljóð og sögur eftir ýmsa höfunda um laugar og potta. Bók Hugleiks Dagssonar Kaupið okkur prýddi veggi búningsklefa World Class, þá var boðið upp á bækur til lestrar í baðstofu World Class. Ölgerðin svalaði þorsta stórra sem smárra og Dreifing bauð upp á munnbita.
Aðsókn á sundlaugarsvæðið og í World Class var gríðarlega góð og stemmning hin besta. Aðstandendur viðburðarins þakka öllum gestum og þátttakendum fyrir góðar undirtektir.