Þessa dagana er verið að dreifa samantekt á forsendum og útfærslu fjárhagsáætlunar fyrir yfirstandandi ár inn á hvert heimili á Seltjarnarnesi. Markmiðið með útgáfunni er að upplýsa íbúa um ráðstöfun fjármuna bæjarins á sem skýrastan hátt.

Þetta er í annað sinn sem ritið kemur út en þar er gerð grein fyrir forsendum fjárhagsáætlunar, helstu rekstrartölum málaflokka ásamt yfirliti yfir fyrirhugaðar framkvæmdir.