Fara í efni

Fengu hjálma að gjöf

Í dag, 27. apríl, fékk 1. bekkur Grunnskóla Seltjarnarness afhenda hjólreiðahjálma Á athafnasvæði Eimskips við Sundahöfn mætti 1. bekkur til að taka á móti hjólreiðahjálmum.

Afhending hjólreiðahjálmaÍ dag, 27. apríl, fékk 1. bekkur Grunnskóla Seltjarnarness afhenda hjólreiðahjálma.

Á athafnasvæði Eimskips við Sundahöfn mætti 1. bekkur til að taka á móti hjólreiðahjálmum. Einning mættu á svæðið hinir landsþekktu félagar út hljómsveitinni Pollapönk. Lögreglan kom og sýndi börnunum mótorhjól sín og fór yfir helstu umferðareglur. Fulltrúar Seltjarnarnesbæjar mættu á staðinn með börnum og kennurum 1. bekkjar, þau Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri og Baldur Pálsson fræðslufulltrúi og aðstoðuðu við að setja hjálma á „Óskabörnin“ sín.

Eimskipafélag Íslands og Kiwaninshreyfingin gefa öllum grunnskólabörnum sem ljúka 1. bekk grunnskóla í vor reiðhjólahjálma. Verkefnið er árviss viðburður félaganna til að stuðla að umferðaröryggi yngstu hjólreiðarmanna landsins, en þetta er í áttunda skipti sem félögin standa fyrir hjálmagjöfum. Í ár hefur verkefnið hlotið nafnið „Óskabörn þjóðarinnar“, en samtals munu um 4.300 börn fá reiðhjólahjálma að gjöf í þetta skipti.

Afhending hjólreiðahjálmaHjálmarnir í ár eru hannaðir af Gotta Bernhöft hjá Koma ehf. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt verkefni og gaman að taka þátt í því. Þetta er í fyrsta skipti sem hjálmar eru hannaðir og framleiddir af íslensku fyrirtæki, svo ég best viti.“ Segir Gotti. Við framleiðslu hjálmanna var ýtrustu öryggiskröfum fylgt og náið samstarf var haft við starfsfólk Neytendastofu ásamt BSI á Íslandi (British Standards Institute). Þetta ferli tryggir að allir EU staðlar eru uppfylltir, auk þess sem allar leiðbeiningar og umbúðir sem fylgja hjálmunum eru á íslensku.

Afhending hjólreiðahjálmaÁ næstu dögum og vikum mun Kiwaninshreyfingin fara í alla grunnskóla landsins og afhenda börnum 1. bekks grunnskóla hjálma. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að vera vakandi fyrir því þegar börn þeirra koma heim með hjálma og aðstoða þau við að stilla þá rétt.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?