Það sem af er vetri og nú á aðventunni hefur verið nóg um að vera í tómstunda-og félagsstarfi hjá eldri bæjarbúum á Seltjarnarnesi. Auk hefðbundinna dagskrárliða hefur verið boðið upp á hin ýmsu námskeið og uppákomur. Skemmtilegar óvissuferðir verið farnar og gott samstarf við stofnanir bæjarins svo sem kirkjuna, bókasafnið, tónlistarskólann ofl.
Nú á aðventunni höfum við notið góðra stunda. Farið í leikhús, jólahlaðborð, aðventukvöld í kirkjunni þar sem sönghópur eldri og yngri tóku lagið saman og sitt í hvoru lagi.
Árlegir tónleikar Selkórsins eru ómissandi þáttur í jólastemningunni ásamt heimsókn hljóðfæraleikara frá Tónlistarskólanum.
Upplestur úr nýútgefnum bókum og tónleikar með lögum Oddgiers Kristjánssonar í boði Tónlistartríósins Glóða hafa einnig komið okkur í jólaskap á aðventunni.