Fara í efni

Fáðu þér G-vítamín!

Geðhjálp stendur fyrir átakinu G-Vítamín á þorra þar sem verndandi þáttum geðheilsu er gefinn gaumur. Alla daga þorrans er bent á eina aðgerð á dag sem nota má sem G-vítamín.
Fáðu þér G-Vítamín!
Geðhjálp stendur fyrir átakinu G-Vítamín á þorra þar sem verndandi þáttum geðheilsu er gefinn gaumur. Alla daga þorrans er bent á eina aðgerð á dag sem nota má sem G-vítamín.

Miðvikudaginn 10. febrúar er G-vítamín dagsins að „Gleyma sér“. Því er tilvalið að fara á safn sem er góð leið til að gleyma sér og njóta menningar og listar í leiðinni. Frítt verður inn á valin söfn um allt land. Ávallt er frítt inn á Bókasafn Seltjarnarness og þangað eru allir hjartanlega velkomnir. Nú standa þar yfir tvær stórkostlegar myndlistarsýningar annars vegar sýningin Jarðsögur í Gallerí Gróttu  og hins vegar Listaverkin okkar, sýning á verkum í eigu bókasafnsins. 
https://www.facebook.com/Bokasafn.Seltjarnarness

Endilega nýtið tækifærið og mætið á söfn, ef ekki á morgun, þá þegar hentar. Það er verðmætt að leyfa sér að gleyma sér. Frekari upplýsingar um söfn sem taka þátt á www.gvitamin.is. Það þarf ekki að skrá sig til að fá aðgang að söfnunum.

Viltu meira G-Vítamín?
Á www.gvitamin.is er hægt að skrá sig og fá heilræði dagsins send í tölvupósti allan þorra ásamt möguleika á fjöldanum öllum af geðbætandi vinningum sem dregnir eru út daglega.

G-Vítamín

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?