Fara í efni

Endurborun vinnsluborholu SN-04 Hitaveitu Seltjarnarness er hafin

Framkvæmdin kemur í kjölfar þess óhapps sem varð þann 14. mars sl. þegar að dælurör slitnaði og raskaði þar með rekstraröryggi hitaveitunnar þar sem ekki reyndist unnt að lagfæra borholuna. 

Nú er hafin endurborun á einni af aðal hitaveituborholum Seltjarnarness. Það er gert í kjölfar þess óhapps sem varð þann 14. mars s.l. þegar dælurör slitnaði við upptekt í vinnsluholu Hitaveitu Seltjarnarness, SN-04, og borholudælan ásamt um 130 m af rörum féllu niður í holuna stífluðust gjöfulustu æðar holunnar. Staðan er því sú að í stað þess að unnt sé að vinna úr holunni um 35 L/s af yfir 100 °C heitu vatni munu nást úr henni um 8 L/s af ca. 85 °C heitu vatni. Þar með er rekstraröryggi hitaveitunnar ekki fulltryggt og ákváðu bæjaryfirvöld að endurbora holuna til að bregðast við því.

Samið var við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um borunina og nota þeir borinn Sleipni til verksins. Auk borverktakans koma margir aðilar að þjónustu og rannsóknum við borunina:

Verkfræðistofan Strendingur hefur daglega umsjón með framkvæmdinni, Sverrir Þórhallsson verkfræðingur er aðalráðgjafi við borun, Hrefna Kristmannsdóttir jarðefnafræðingur er aðalráðgjafi vegna jarðfræði- og jarðhitarannsókna, Ísor annast svarfgreiningar og mælingar í borholu, verkfræðistofan Vatnaskil annast prófanir á holunni og úrvinnslu þeirra, verkfræðistofan Verkís hefur umsjón með gagnaskráningu og tengingu, Deilir ehf.sér um virkjun holunnar.

Gengið var frá borplani rétt vestan við gömlu holuna og hófst borunin sjálf þann 9. September sl. Áætlað dýpi holunnar er 2200 m og er vonast til að hún gefi a.m.k. 35 L/s af um eða yfir 115 °C heitu vatni. Samkvæmt áætlunum er gert ráð fyrir því að verkefnið taki rétt rúma tvo mánuði.

Að lokinni borun mun taka nokkurn tíma að virkja holuna, leggja lagnir og byggja borholuhús, sem væntanlega verður að mestu neðanjarðar. Vonast er til þess að borholan verði komin í gagnið þegar að kaldasti tími ársins gengur í garð. Hitaveitan hefur hins vegar jafnframt gert ýmsar aðrar ráðstafanir til að tryggja rekstraröryggi hitaveitunnar og hámarka afköst annarra vinnsluholna á meðan á framkvæmdunum stendur.

Frágangur á borstað að lokinni borun verður þannig að nánast engin ummerki ættu að sjást eftir framkvæmdirnar.


borhola

borhola

borhola

 

 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?