Gasmengun getur verið hættuleg og haft heilsufarsleg áhrif, sér í lagi á þá sem eru viðkvæmir fyrir, með astma eða aðra undirliggjandi lungna- og/eða hjartasjúkdóma og því kynna sér leiðbeiningar þess efnis. Sjá nánar:
Einn fylgifiskur eldgoss er gasmengun sem getur verið hættuleg og haft heilsufarsleg áhrif, sér í lagi á þá sem eru viðkvæmir fyrir, með astma eða aðra undirliggjandi lungna- og/eða hjartasjúkdóma. Á vef Veðurstofu Íslands er á einum stað hægt að nálgast brennisteinmengunarspá og veðurspá auk vísunar á viðeigandi staði sem veita mikilvægar upplýsingar um loftgæði í rauntíma, ráðleggingar Umhverfisstofnunar vegna gasmengunar og ráðleggingar Embætti Landlæknis vegna heilsufarslegra áhrifa gasmengunar.
Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum og leiðbeiningum frá Almannavörnum.
Sjá nánar - Gasmengun | Veðurstofa Íslands (vedur.is)