Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum hefur bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkt deiliskipulag á Suðurströnd, skóla- og íþróttasvæði.
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum hefur bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkt deiliskipulag á Suðurströnd, skóla- og íþróttasvæði.
Tillaga að deiliskipulagi Suðurstrandar, skóla- og íþróttasvæðis var í kynningu frá 29. september 2006 til og með 30. október 2006 og var samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarness hinn 13. desember 2006.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um og öðlaðist gildi í byrjun árs. Hið nýja deiliskipulag skóla- og íþróttasvæðis er meðal annars forsenda fyrir byggingu líkamsræktar í tengslum við Sundlaug Seltjarnarness og áhorfendastúku við gervigrasvöll við Suðurströnd.